Bar Avni
Hljómsveitarstjóri
Bar Avni skaust upp á stjörnuhimininn árið 2024 með sigri í La Maestra-keppninni í París, sem opnaði dyr að samstarfi við Paris Mozart Orchestra. Hún er menntaður slagverksleikari og lærði hljómsveitarstjórn hjá Yoav Talmi, Martin Sieghart og Ulrich Windfuhr, og hefur starfað sem aðstoðarmaður hjá Gustavo Dudamel og Klaus Mäkelä. Hún hefur nýlega stjórnað Útvarpshljómsveitinni í Köln, Fílharmóníusveitinni í Varsjá og fjölmörgum öðrum hljómsveitum. Hún gaf einnig út sína fyrstu plötu hjá Alpha Classics með Þjóðarhljómsveitinni í Bordeux
Á síðastliðnu starfsári stjórnaði Bar Avni heimsfrumflutningi á The White Book eftir Lauru Bowler hjá Sinfóníuhljómsveitinni í London — verk sem var sameiginlega pantað af Sinfóníuhljómsveitinni í London, Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg og Fílharmóníusveitinni í Kaupmannahöfn, og flutt af Barböru Hannigan, aðalhljómsveitarstjóra og listrænum stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
