Bryan Cheng
Selló
Kanadíski sellóleikarinn Bryan Cheng, sem búsettur er í Berlín, hefur vakið athygli sem einn áhugaverðasti listamaður sinnar kynslóðar og er rómaður fyrir kraft og djúpa tjáningu í leik sínum. Hann hefur náð eftirtektarverðum árangri í alþjóðlegum keppnum og varð fyrsti tónlistarmaðurinn í 40 ár til að hljóta verðlaun bæði í einleikarakeppninni sem kennd er við Elísabetu drottningu af Belgíu og alþjóðlegu tónlistarkeppninni í Genf.
Cheng er þekktur fyrir innilega túlkun og frumlegt verkefnaval og er sífellt eftirsóttari af helstu hljómsveitum og tónlistarhátíðum. Á starfsárinu 2025–26 þreytti hann frumraun sína með hljómsveitum á borð við Kammersveit Evrópu, Útvarpsfílharmóníunni í Hannover, Musikkollegium-hljómsveitinni í Winterthur, Sinfóníuhljómsveitinni í Nürnberg og Québec í Kanada, auk þess að snúa aftur og leika með Þýsku sinfóníuhljómsveitinni í Berlin og Kanadísku þjóðarhljómsveitinni.
