EN

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir

Selló

 

Sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir hefur hlotið mikið lof fyrir spilamennsku sína og túlkun. Hún hefur komið fram á mörgum af virtustu tónleikasölum heims, meðal annars Carnegie Hall, Southbank Centre og Lincoln Center. Þá hefur hún hlotið verðlaun í fjölmörgum keppnum, þar á meðal Anton Rubinstein-alþjóðlegu selllókeppninni og Fischoff-kammertónlistarkeppninni, þar sem hún vann aðalverðlaunin með Terra String Quartet. Hún var valin City Music Foundation Artist árið 2024. Geirþrúður er þekkt fyrir djaft verkefnaval, þar sem hún blandar gjarnan saman sjaldheyrðum verkum og nýrri tónlist.

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir vann keppni Ungra einleikara árið 2013 og kom þá fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og flutti sellókonsert Schumann með hljómsveitinnni.