EN

Ingo Metzmacher

Hljómsveitarstjóri

Ingo Metzmacher er þýskur hljómsveitarstjóri, þekktur fyrir túlkun sína á tónlist 20. og 21. aldar. Hann var tónlistarstjóri Staatsoper Hamburg, aðalhljómsveitarstjóri Hollensku þjóðaróperunnar og Þýsku sinfóníuhljómsveitarinnar í Berlín. Hann var einnig listrænn stjórnandi KunstFestSpiele Herrenhausen 2016–2025. Hann er reglulegur gestur hjá Vínarfílharmóníunni, Berlínerfílharmóníunni, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Sinfóníuhljómsveitinni í Cleveland, og hefur frumflutt talsverðan fjölda tónverka á helstu sviðum Evrópu, þar á meðal á Salzburg-hátíðinni, La Scala og Þjóðaróperunni í París.