Joe Hisaishi
Hljómsveitarstjóri og tónskáld
Joe Hisaishi er japanskt tónskáld, hljómsveitarstjóri og píanisti. Hann er þekktastur fyrir tónlist sína í kvikmyndum frá Studio Ghibli - þar á meðal Spirited Away, My Neighbor Totoro og Howl's Moving Castle. Hann er aðalhljómsveitararstjóri Japan Century Symphony Orchestra og stjórnar reglulega hjá sinfóníuhljómsveitunum í Fíladelfíu og Chicago, Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar, Konunglegu fílharmóníusveitinni og Lundúna sinfóníunni. Tónlist Joe Hisaishi er gefin út hjá Deutsche Grammophon.
