EN

John Storgårds

Hljómsveitarstjóri

 

John Storgårds er aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitar breska ríkisútvarpsins (BBC) og Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Turku. Hann er ennfremur listrænn stjórnandi Kammerhljómsveitar Lapplands - stöðu sem hann hefur gegnt í 30 ár. Hann á tvíþættan feril sem hljómsveitarstjóri og fiðluleikari og er þekktur fyrir hugmyndaauðgi í dagskrárgerð. Frá og með starfsárinu 2026/27 tekur hann við tveimur nýjum stöðum: sem aðalhljómsveitarstjóri Arts Centre-hljómsveitarinnar í Ottawa í Kanada og aðalhljómsveitarstjóri og listrænn ráðgjafi Junge Deutsche Philharmonie. Hann er reglulegur gestur hjá Berlínarfílharmóníunni, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Fílharmóníusveitinni í New York og Sinfóníuhljómsveitinni í Boston.

John Storgårds stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn árið 2012 þegar hann flutti Szymanowski fiðlukonserta nr. 1 og 2 ásamt fiðluleikaranum Christian Tetzlaff. Hann kom aftur árið 2017 og stjórnaði þá Íslandsfrumsýningi á Fimm söngvum fyrir sópran og hljómsveit eftir Hafliða Hallgrímsson með sóprаnsöngkonunni Helenu Juntunen, ásamt sjöttu sinfóníu Sibeliusar.