EN

Kyrja

Kór

Kyrja er íslenskur sönghópur, stofnaður 2022. Meðlimir Kyrju eru allir reynslumiklir atvinnusöngvarar sem vilja víkka út hugmyndir fólks um kórtónlist. Kyrja hefur þegar frumflutt lög eftir Hafstein Þórólfsson og Philip Barkhudarov, og stefnir á að vera leiðandi afl í frumflutningi nýrrar tónlistar og samstarfi við aðra tónlistarmenn úr fjölbreyttum geirum tónlistar. Kyrja og meðlimir hennar hafa unnið með Júníusi Meyvant og Kaleo, sungið inn á tölvuleikinn God of War Ragnarök, en tónlist hans hefur unnið til verðlauna, og komu að auki fram í hinu eftirminnilega Pokalagi í áramótaskaupinu 2022.