Matthew Halls
Hljómsveitarstjóri
Breski stjórnandinn og semballeikarinn Matthew Halls er vinsæll gestur hljómsveita og óperuhúsa og nýtur virðingar sem kraftmikill og líflegur túlkandi tónlistar frá öllum skeiðum tónlistarsögunnar. Hann hefur verið aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Tampere í Finnlandi frá árinu 2023 og er reglulegur gestur hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Cleveland og Vín, Fílharmóníusveitinni í Rotterdam, og Sinfóníuhljómsveitunumi í Toronto og Dallas. Halls hefur sterkan bakgrunn í upprunaflutningi er hann sérstaklega eftirsóttur fyrir túlkanir sínar á Haydn, Mozart og Beethoven.
Matthew Halls stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn árið 2009 þegar hann stýrði Mozart-tónleikum með Martin Fröst í Háskólabíói. Af verkum sem hann hefur flutt hér á landi má nefna Messías Händels, píanókonserta og sinfóníur eftir Beethoven og Mozart, og Sinfóníu í þremur þáttum eftir Stravinskíj.
