Tan Dun
Hljómsveitarstjóri
Tan Dun hefur haft mikil áhrif á alþjóðlegt tónlistarlíf með sköpunarverki sínu sem brúar bilið milli klassískrar tónlistar, margmiðlunar og austurlenskra og vestrænna hefða. Hann er alþjóðlegur velgjörðarsendiherra UNESCO og hefur hlotið mörg virtustu verðlaun tónlistarheimsins, þar á meðal Grammy-verðlaun, Óskarsverðlaun, Grawemeyer-verðlaunin, Bach-verðlaunin og Gullljónið fyrir æviframlag.
Tónlist hans er flutt víða um heim af helstu hljómsveitum, óperuhúsum og tónlistarhátíðum. Sem hljómsveitarstjóri er Tan Dun þekktur fyrir nýstárlegar efnisskrár og hefur stjórnað mörgum fremstu hljómsveitum heims, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Fíladelfíu hljómsveitinni, Konunglegu Concertgebouw-hljómsveitinni, hljómsveit Metropolitan-óperunnar, Sinfóníuhljómsveit breska ríkisútvarpsins og Þjóðarhljómsveit Frakklands.
