| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 8. maí 2027 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 3.800 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Antonio Vivaldi Úr Árstíðunum
Nikolaj Rimskíj-Korsakov Býflugan
Ingi T. Lárusson Ó, blessuð vertu sumarsól
Miley Cyrus Flowers
Vaughan Williams Geitungarnir, forleikur
Joseph Kosma Haustlauf
Enskt lag Frost er úti fuglinn minn
Íslenskt þjóðlag Krummi svaf í klettagjá
-
Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson
-
Sögumaður & Kynnir
Ólafur Egill Ólafsson
Í grænni lautu er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Listasafns Íslands og Grasagarðs Reykjavíkur. Þar eiga þjóðsögur, tónlist, myndlist og náttúran stefnumót. Við förum í árstíðatengt ferðlag þar sem tónlistin vekur allt að vori og listaverkin leika sér að litagleði sumarsins, fjúka með laufum haustsins og falla í djúpan dvala vetrarins.
Ólafur Egill Egilsson er sögumaður á þessum heillandi og lærdómsríku fjölskyldutónleikum og leiðir tónleikagesti í gegnum litróf árstíðanna þar sem tónlistin og grasafræðin sameinast myndlistinni sem varpað verður upp á meðan tónleikunum stendur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.
