EN

Psycho

Bíótónleikar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
12. nóv. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 5.900 - 8.600 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Psycho

    Bernard Hermann tónlist
    Alfred Hitchcock leikstjórn

  • Hljómsveitarstjóri

    Ben Palmer

Kvikmynd Alfreds Hitchcock, Psycho, frá árinu 1960 um örlagaríka heimsókn Marion Crane á Bates-gistihúsið í Kaliforníu er af mörgum talin til bestu bíómynda liðinnar aldar. Kvikmyndin var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna og nýtur enn gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að rúm 65 ár séu liðin frá frumsýningu hennar. Þar skiptir sköpum hin hrollvekjandi tónlist bandaríska tónskáldsins Bernards Herrmann. Hann samdi tónlist við einar sjö kvikmyndir Hitchcocks og er tónlistin við Psycho langþekktust. Hún er einvörðungu skrifuð fyrir strengjahljóðfæri hljómsveitarinnar og eru möguleikar þeirra kannaðir í þaula. Skerandi strengjahljómarnir í hinu fræga sturtu-atriði eiga eftir að fylgja áheyrendum dögum saman í kjölfar tónleikanna!

Ekki missa af Psycho í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg.  Myndin er bönnuð áhorfendum yngri en 16 ára.