EN

Rakhmanínov
og Gubaidulina II

Athugið að tónleikunum hefur verið aflýst vegna samkomubanns

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
26. mar. 2020 » 19:30 - 21:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 8.100 kr. Aflýst

Sam­komu­bann hef­ur verið sett á hér­lend­is vegna kór­ónu­veirunn­ar og er öllum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands því aflýst til 13. apríl. Athugið að miðahafar geta fært aðgöngumiða sína á aðra tónleika hljómsveitarinnar síðar á þessu starfsári, henti það ekki er hægt að fá miðann endurgreiddan í miðasölu Hörpu. Nánar hér.

Sofia Gubaidulina er meðal virtustu tónskálda sinnar kynslóðar og er komin hátt á níræðisaldur. Verk hennar eru mjög í forgrunni á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands vorið 2019; tvö lykilverk hennar hljóma á áskriftartónleikum ásamt hljómsveitarverkum landa hennar, Rakhmanínovs, auk þess sem tónleikar í Föstudagsröðinni eru helgaðir kammertónlist beggja.

Offertorium (Fórn) er eitt helsta verk Gubaidulinu, magnþrunginn fiðlukonsert þar sem hún leggur út af svonefndu konungsstefi úr Tónafórn J.S. Bachs. Rússnesk-ísraelski fiðlusnillingurinn Vadim Gluzman fer með einleikshlutverkið í verkinu, en hann þykir einn helsti túlkandi þess á heimsvísu og hefur leikið það með mörgum helstu sinfóníuhljómsveitum heims.

Önnur sinfónía Rakhmanínovs er hans dáðasta hljómsveitarverk og fastagestur á efnisskrám hljómsveita frá því það hljómaði fyrst árið 1908. Í henni sameinast allt það sem gerir tónlist Rakhmanínovs svo heillandi: grípandi stef og meistaraleg tök á litbrigðum hljómsveitarinnar. Í tónleikaferð sinni til Japans haustið 2018 lék Sinfóníuhljómsveitin verkið alls sjö sinnum undir stjórn Vladimirs Ashkenazy, og verður fróðlegt að heyra tök hennar á því nú, rúmu ári síðar.

Antonio Méndez hefur tvisvar áður stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands og uppskorið fimm stjörnu dóma frá gagnrýnendum í bæði skiptin.