EN

Víkingur og Adès

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
18. nóv. 2021 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 – 8.500 kr.

UPPLÝSINGAR TIL TÓNLEIKAGESTA
Samkvæmt núgildandi reglugerð um sóttvarnir verða allir gestir að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu á þennan viðburð.
Hraðpróf eru aðgengileg víða, gjaldfrjáls og gilda í 48 klst.
Salnum er ennfremur skipt upp í þrjú svæði og grímuskyda er allan tímann.

Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fara í hraðpróf á eftirfarandi stöðum:

• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býður upp á hraðpróf á Suðurlandsbraut 34; www.hradprof.covid.is

• Covidtest býður upp á hraðpróf bæði á Kleppsmýrarvegi 8 og í Hörpu. Aðstaðan í Hörpu er í kjallara hússins, beint á móti inngangi frá bílastæðakjallara; www.covidtest.is – athugið að hraðprófsstöð í Hörpu lokar kl. 18

• Öryggismiðstöðin býður upp á hraðpróf við Kringluna og BSÍ; www.testcovid.is

Utan höfuðborgarsvæðis www.hradprof.covid.is

ATHUGIÐ AÐ TÓNLEIKAKYNNING KVÖLDSINS FELLUR NIÐUR VEGNA SÓTTVARNARÁÐSTAFANA.
____________________________________________

Thomas Adès hefur um áratuga skeið verið meðal virtustu tónskálda Bretlands, auk þess að vera afburða hljómsveitarstjóri og píanóleikari. Píanókonsertinn In Seven Days var frumfluttur árið 2008 og er í sjö þáttum sem spegla sjö daga sköpunarsögunnar í Fyrstu Mósebók. Konsertinn hefur hlotið einróma lof og þykir einn fremsti píanókonsert sem saminn hefur verið á 21. öld. Tónlistarrýnir The New York Times sagði verkið „frábært“, og gagnrýnandi San Francisco Chronicle sagði að konsertinn væri „bæði dramatískur og íhugull, eins og hann vilji ná utan um allan heiminn – sem er verðugt takmark þegar sköpunarsagan er annars vegar – en líka dásamlega aðgengilegur“.

Þessir tónleikar eru hinir fyrstu í röð þrennra tónleika með Víkingi Heiðari Ólafssyni, staðarlistamanni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem hann flytur nýja píanókonserta eftir Thomas Adès, John Adams og Daníel Bjarnason undir stjórn tónskáldanna sjálfra. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra það besta í nýjum konsertsmíðum og komast að því hvernig þessu aldagamla formi vegnar á 21. öldinni.

Adès er ákafur aðdáandi Sibeliusar og hefur stjórnað sinfóníum hans og öðrum hljómsveitarverkum víða um heim, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Á Íslandi stjórnar hann svítunni Rakastava (Elskhuginn), ásamt þáttum úr leikhústónlist Sibeliusar við Ofviðri Shakespeares, sem var eitt það síðasta sem hann sendi frá sér áður en hann dró sig í hlé frá tónsmíðum.

Sækja tónleikaskrá