B) Töfraflautan eftir Mozart - 3.-6. bekkur – aflýst
Skólatónleikar fyrir 3.–6. bekk
Bókunartímabilinu er lokið.
Miðvikudagur - 9. febrúar 2022 - kl. 11:00
Fimmtudagur - 10. febrúar 2022 - kl. 09:30
Fimmtudagur - 10. febrúar 2022 - kl. 11:00
Föstudagur - 11. febrúar 2022 - kl. 09:30
Föstudagur - 11. febrúar 2022 - kl. 11:00
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Þórunn Arna Kristjánsdóttir sögumaður
Eyrún Unnarsdóttir Pamina
Sveinn Dúa Hjörleifsson Tamino
Oddur Arnþór Jónsson Papageno
Harpa Ósk Björnsdóttir Papagena
Bryndís Guðjónsdóttir Næturdrottning
W.A. Mozart: Töfraflautan
Um tónleikana
Töfraflautan eftir Mozart er ein dáðasta ópera sögunnar. Á skólatónleikunum er óperan flutt í barnvænni kukkustundalangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara. Í Töfraflautunni heyrum við meðal annars af prinsinum Tamínó, Næturdrottningunni og Pamínu dóttur hennar ásamt fuglafangaranum Papagenó og sálufélaga hans, Papagenu. Saman lenda þau í ævintýrum og leysa erfiðar þrautir. Einsöngvararnir eru af yngri kynslóðinni og sögumarðurinn leiðir tónleikagesti í gegnum verkið á léttan og leikandi hátt. Óperan er flutt á íslensku.
Lengd tónleikanna er u.þ.b. 55 mínútur
Tónleikarnir eru í Eldborg
Tónleikadagar
Miðvikudagur 9. febrúar 2022
11:00
Fimmtudagur 10. febrúar 2022
09:30
11:00
Föstudagur 11. febrúar 2022
09:30 – tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli
11:00