Á tímum samkomubanns bauð Sinfónían upp á reglulegar heimsendingar. Fimmtudagskvöld voru áfram Sinfóníukvöld og var völdum tónleikum sjónvarpað og útvarpað í heild sinni kl. 19:30 á RÚV 2 og Rás 1. Boðið var upp á tónleikaröðina Heima í Hörpu þar sem hljóðfæraleikarar buðu upp á lifandi tónlistar-flutning í morgunsárið í beinu streymi. Einnig sendu hljóðfæra-leikarar reglulegra heimsendingar á samfélagsmiðlum. Um leið og samkomubannið rýmkaði gat hljómsveitin boðið upp á beinar sjónvarpsútsendingar á RÚV með úrvalsliði íslenskra listamanna.
Með þessum heimsendingum viljum við létta mönnum lundina í samkomubanni og trúum því að tónlistin sameini okkur öll.