EN

Anna Þorvaldsdóttir

Listamaður í samstarfi

Anna Þorvaldsdóttir hefur skipað sér í fremstu röð tónskálda á heimsvísu undanfarin ár og semur meðal annars stór sinfónísk verk fyrir helstu hljómsveitir heims. Berlínarfílharmónían og Fílharmóníusveit New York borgar hafa til dæmis frumflutt tónverk eftir hana á undanförnum  árum. Anna verður áfram listamaður í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands starfsárið 2026/27. Anna  gegndi hlutverki staðartónskálds SÍ frá árinu 2018 til ársloka 2023 en samstarf hennar við hljómsveitina spannar enn lengri tíma. Á starfsárinu mun hljómsveitin standa að Íslandsfrumflutningi á stóru hljómsveitarverki eftir Önnu: Shadows of Solace, sem Sinfóníuhljómsveit Ísland pantaði í samstarfi við Sinfóníuhljómsveitina í Boston, Gewandhaus hljómsveitina í Leipzig og Fílharmóníusveitina í Helsinki.