EN

Aðventutónleikar

Bach, Rameau og Mozart

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
6. des. 2018 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 7.800 kr.
Tónleikakynning » 6. des. kl. 18:00

Á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2018 hljóma verk eftir þrjá tónsmíðameistara 18. aldar. Jean-Philippe Rameau var eitt mesta óperutónskáld sinnar tíðar og „óperu-ballettinn“ Les indes galantes frá árinu 1735 er eitt hans vinsælasta verk, þar sem brugðið er upp ævintýralegum myndum úr Indíalöndum. Brandenborgarkonsertar Bachs eru meðal helstu hljómsveitarverka hans og eru yfirgripsmikil úttekt á konsertforminu. Verkin gera miklar kröfur til einleikaranna og á það ekki síst við um konsertinn nr. 2 sem saminn er fyrir trompet, flautu, óbó og fiðlu. Hér er það hinn ungi en bráðflinki Baldvin Oddsson sem mundar trompetinn og fær til liðs við sig nokkra framúrskarandi hljóðfæraleikara.

Mozart samdi Prag-sinfóníuna á hátindi ferilsins, um svipað leyti og óperuna Brúðkaup Fígarós. Það var einmitt velgengni síðarnefnda verksins í Prag sem varð til þess að Mozart samdi nýja sinfóníu borgarbúum til yndisauka, og hafði um það mörg orð að hvergi í heiminum kynnu áheyrendur að meta tónlist hans eins og þar. Hollenski hljómsveitarstjórinn Dirk Vermeulen er prófessor við Konunglega tónlistarháskólann í Brussel og nýtur virðingar víða um heim fyrir innblásna túlkun sína á tónlist frá 17. og 18. öld. Hann stjórnaði Aðventutónleikum Sinfóníunnar árið 2014 með frábærum árangri. 

Sækja tónleikaskrá