EN

Antonini & Avital

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
20. maí 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Joseph Bologne Sinfónía nr. 1
    Johann Nepomuk Hummel Mandólínkonsert í G-Dúr
    Johann Sebastian Bach Konsert fyrir mandólín og blokkflautu í c-moll, BWV 1060R
    Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 41, „Júpíter“

  • Hljómsveitarstjóri og blokkflauta

    Giovanni Antonini

  • Einleikari

    Avi Avital mandólín

Mandólín er ekki algengt einleikshljóðfæri á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en nú ber svo við að okkur heimsækir þekktasti mandólínleikari samtímans, Avi Avital. Hann er heillandi tónlistarmaður og göldróttur á hljóðfæri sitt. Á þessum tónleikum sýnir hann snilli sína í laufléttum konsert frá klassíska tímanum eftir Johann Nepomuk Hummel og einnig í konsert fyrir mandólín og blokkflautu eftir meistara Bach þar sem hljómsveitarstjórinn Giovanni Antonini leikur á blokkflautuna. 

Antonini er aufúsugestur hingað til lands sem beðið hefur verið eftir enda stjórnar hann öllum fremstu sinfóníuhljómsveitum heims. Antonini stjórnar hér ennfremur tveimur sinfóníum klassíska tímans, annarri eftir Joseph Bologne sem fengið hefur aukna athygli á síðustu árum í heimi sígildrar tónlistar – og loks meistaraverki Mozarts, sinfóníu nr. 41 sem jafnan er kölluð Júpítersinfónían. Hún er síðasta og metnaðarfyllsta sinfónía Mozarts og jafnframt einn af hápunktum klassískrar tónlistarhefðar.