Avi Avital
Mandólín
Avi Avital er fyrsti mandólínleikarinn sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna í flokki klassískrar tónlistar og hefur hlotið mikið lof fyrir snilld sína á hljóðfærið og heillandi sviðsframkomu. Hann er einn helsti málsvari hljóðfærisins og hefur á síðustu tveimur áratugum átt stóran þátt í að breyta stöðu mandólínsins í klassískri tónlist, komið fram í helstu tónleikasölum heims og auðgað verkaskrá hljóðfærisins með umritunum og yfir 100 pöntuðum verkum. Þar á meðal eru konsertar eftir Fazil Say, Jennifer Higdon, Önnu Clyne o.fl.
