EN

Barnastund Sinfóníunnar

Ókeypis tónleikar fyrir yngstu hlustendurna

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
14. sep. 2019 » 11:30 » Laugardagur Norðurljós | Harpa Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Sígildir gullmolar og hressileg tröllalög eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund

  • Kynnir

    Valur Freyr Einarsson

Barnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Norðurljósum. Gott er að taka með sér púða til að sitja á. Góðir gestir koma í heimsókn og taka virkan þátt í Barnastundinni með tónlistarmúsinni Maxímús Músíkús. Konsertmeistari er Sigrún Eðvaldsdóttir.

Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.