Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
9. okt. 2025 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.990 - 10.100 kr. | ||
Kaupa miða |
-
Efnisskrá
Claude Debussy Forleikur að Síðdegi skógarpúkans
Béla Bartók Píanókonsert nr. 3
Witold Lutosławski Sinfónía nr. 4
Maurice Ravel La valse
-
Hljómsveitarstjóri
Dima Slobodeniouk
-
Einleikari
Martin Helmchen
Á þessum tónleikum leiða tveir framúrskarandi listamenn áheyrendur í gegnum í efnisskrá þar sem tónlist fjögurra frumkvöðla 20. aldarinnar verður leikin. Á fyrri hluta tónleikanna er teflt saman seiðandi og litfögrum tónum Debussys gegn þjóðlegri og hrynsterkari tónlist Béla Bartóks. Eftir hlé tekur við djarfur en fágaður stíll Lutosławskis í síðustu sinfóníu hans og tónleikunum lýkur svo á hinni ljóðrænu en ástríðufullu túlkun Ravels á Vínarvalsinum.
Þýski píanóleikarinn Martin Helmchen er einn eftirsóttasti píanó leikari samtímans. Næm túlkun og blæbrigðarík tónmyndun ásamt óaðfinnanlegri tækni hefur fleytt honum á svið með helstu sinfóníuhljómsveitum heims og verður spennandi að heyra hann spreyta sig á einleikshlutverkinu í 3. píanókonserti Bartóks. Finnski hljómsveitarstjórinn Dima Slobodeniouk heldur á tónsprotanum á þessum tónleikum en hann á það sameiginlegt með einleikaranum að stíga reglulega á svið með þekktustu hljómsveitum heims líkt og Sinfóníuhljómsveitum Lundúna og Boston og Fílharmóníusveitum Berlínar og New York.