Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
21. jan. 2021 » 20:00 - 21:00 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.400 – 5.700 kr. |
-
Efnisskrá
Giovanni Bottesini Konsert fyrir kontrabassa nr. 2
Johannes Brahms Sinfónía nr. 3
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
-
Kynnir
Árni Heimir Ingólfsson
Á þessum tónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Íslands stjórnar Bjarni Frímann Bjarnason, staðarhljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar, verkum eftir Bottesini og Brahms.
Þegar sinfónía nr. 3 eftir Johannes Brahms var frumflutt í Vínarborg árið 1882 voru viðtökurnar einhverjar þær bestu sem tónskáldið hafði nokkru sinni upplifað. Enda er tónlistin kröftug og áhrifamikil, byggð á stuttu stefi, F-A-F, sem Brahms sagði að táknaði orðin frei aber froh – frjáls en glaður.
Ítalski kontrabassasnillingurinn og tónskáldið Giovanni Bottesini var á sinni tíð kallaður „Paganini kontrabassans“ enda voru hæfileikar hans undraverðir. Bottesini átti ævintýralega ævi, starfaði um skeið við óperuhúsið í Havana á Kúbu og var náinn vinur Verdis.
Hann samdi tvo glæsilega konserta fyrir sjálfan sig að leika, og á þessum tónleikum mun Jacek Karwan, kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, flytja hinn síðari þeirra, sem var saminn árið 1845.
Tónleikunum er útvarpað beint á Rás 1.
Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber einnig skylda að vera með grímu á tónleikunum. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.