EN

Björk Orkestral

Björk Guðmundsdóttir ásamt strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands

Dagsetning Staðsetning Verð
11. okt. 2021 » 20:00 - 21:00 » Mánudagur Eldborg | Harpa 4.900 - 11.900 ISK Uppselt
  • Efnisskrá

    Björk heldur þrenna tónleika í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands

  • Hljómsveitarstjóri

    Viktor Orri Árnason

  • Fram koma

    Björk Guðmundsdóttir
    Strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands

Björk heldur ferna tónleika í október og nóvemer og eru þrennir þeirra í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem strengjasveit og blásarasveit úr hljómsveitinni kemur fram með Björk undir stjórn Viktors Orra Árnasonar.

Alls heldur Björk ferna tónleika í tónleikaröðinni björk orkestral, þar sem hún mun flytja eigin tónsmíðar og útsetningar í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hamrahlíðarkórinn, flautuseptetinn Viibra og fleiri gesti og koma um það bil 100 íslenskir tónlistarmenn fram á tónleikaröðinni. Þannig heldur Björk upp á samstarf sitt við tónlistarfólk frá Íslandi, sem starfað hefur með henni í hljóðverum og á tónleikum út um allan heim.

Uppselt er á alla tónleikana en hægt er að kaupa sér aðgang að beinu streymi frá tónleikunum. Hluti ágóða af streyminu rennur til Kvennaathvarfsins.

Mánudagur 11. október kl. 20:00 (áður 15. ágúst 2020/28. september 2020/7. febrúar/18. apríl/29. ágúst)
Björk og strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Viktor Orri Árnason
Lög af plötunum Post, Vesperatine og Dancer in the Dark

Sunnudagur 24. október kl. 17:00 (áður 9. ágúst 2020/19. september 2020/24. janúar/25. apríl/5. september)
Björk og Hamrahlíðarkórinn
Stjórnandi: Þorgerður Ingólfsdóttir
Bergur Þórisson – Orgel
Lög af plötunum Medulla, Biophilia og Utopia

Sunnudagur 31. október kl. 17:00 (áður 23. águst 2020/13. september 2020/31. janúar/2. maí/12. september)
Björk og blásarasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Flautuseptetinn Viibra
Katie Buckley og Jónas Sen – Harpa og píanó
Lög af plötunum Vesperatine, Volta og Utopia

Mánudagur 15. nóvember kl. 20:00 (áður 29. ágúst 2020/17. janúar kl. 17:00/9. maí/19. september)
Björk og strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Viktor Orri Árnason
Lög af plötunum Homogenic og Vulnicura

Allir miðar eru enn gildir fyrir nýju dagsetningarnar.

Hér geturðu keypt miða á beina útsendingu.