EN

Brahms og Bjarni Frímann

Tónleikarnir hétu áður Brahms og Tortelier

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
16. maí 2019 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 7.800 kr.

Tveir frábærir íslenskir strengjaleikarar leiða saman hesta sína á þessum tónleikum. Ari Þór Vilhjálmsson hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn og er nú leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki, en Sigurgeir Agnarsson er leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Saman leika þeir tilfinningaþrunginn tvíkonsert Brahms fyrir fiðlu og selló, síðasta hljómsveitarverk meistarans. Akademíski hátíðarforleikurinn er glaðvært skemmtistykki sem Brahms samdi í þakkarskyni eftir að honum hafði verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við þýskan háskóla. Verkinu lýkur með stúdentasöngnum Gaudeamus igitur og á það vel við á vordögum þegar útskriftir eru á næsta leiti.

Louise Farrenc var framúrskarandi píanóleikari á 19. öld og starfaði í meira en þrjá áratugi sem prófessor í píanóleik við Tónlistarháskólann í París. Hún samdi fjölmörg píanó- og kammerverk, en einnig þrjár rómantískar sinfóníur sem þykja sérlega vel heppnaðar. Á síðustu árum hafa tónsmíðar Farrenc verið grafnar úr gleymsku og þykir ljóst að hún verðskuldar stóran sess í tónlistarsögunni. Tónleikarnir hefjast á spænskuskotinni fantasíu Chabriers þar sem hann fléttar saman sprellfjöruga spænska dansa með eftirminnilegum tilþrifum. 

Breyting: Bjarni Frímann Bjarnason, aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hleypur í skarðið fyrir Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnanda sveitarinnar, en hann þurfti því miður að aflýsa komu sinni vegna veikinda. Efnisskráin er óbreytt.

Sækja tónleikaskrá