EN

Draumur á Jónsmessunótt

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
3. jún. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Felix Mendelssohn Þættir úr Draumi á Jónsmessunótt
    Aaron Copland Dance Symphony
    Richard Rodgers Carousel Waltz
    Billy Barnes At the Fair (úts. Barbara Hannigan og Bill Elliott)

  • Hljómsveitarstjóri og sópran

    Barbara Hannigan

Í lok tónleikaársins býður Barbara Hannigan, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar upp á heillandi og sumarlega efnisskrá. Tónleikarnir hefjast með fjórum þáttum úr tónlist Mendelssohns við leikritið Draum á Jónsmessunótt, þar á meðal eru hinn fjörlegi forleikur og brúðkaupsmarsinn alþekkti. Dansinn er áberandi í bandarískri tónlist, sem finna má á efnisskránni. 

Hringekjan snýst og snýst í dillandi valsi úr söngleik Richard Rodgers og Dansasinfónía Aarons Copland hljómar nú í fyrsta sinn á Íslandi, verk sem tónskáldið endurvann upp úr balletti sem aldrei varð. Í lok tónleikanna syngur Barbara Hannigan í nýrri tónsmíð, Á hátíðinni, sem hún hefur skapað ásamt bandaríska kvikmynda- og leikhústónskáldinu Bill Elliot. Tónleikarnir verða endurteknir í styttri útgáfu, án Dansasinfóníunnar, í Hofi á Akureyri.