EN

Eva stjórnar Vorblóti

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
29. sep. 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 8.700 kr.

Flutningur Vorblóts eftir Stravinskíj telst ávallt stórviðburður hér á landi en verkið er meðal dáðustu hljómsveitarverka 20. aldar og um leið eitt hið áhrifamesta. Þannig kallaði tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Pierre Boulez það „fæðingarvottorð nútímatónlistar“. Í verkinu er lýst fornri helgiathöfn þar sem ein úr hópi ungra meyja er valin til að dansa sig til dauða – og tryggja þannig komu vorsins. Vorblót er kraftmikill lokahnykkur á efnisskrá þessara tónleika, þar sem fyrri hlutinn hverfist um glæsilega fulltrúa íslenskrar samtímatónlistar.

Anna Þorvaldsdóttir er í hópi áhrifamestu tónskálda samtímans og verk hennar eru flutt af fremstu hljómsveitum heims, þar á meðal CATAMORPHOSIS sem var pantað af Berlínarfílharmóníunni, Fílharmóníusveitinni í New York, Sinfóníuhljómsveitinni í Birmingham og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Verkið var frumflutt í Berlín í janúar 2021 og hefur farið sigurför um heiminn. Kirill Petrenko, aðalhljómsveitarstjóri Berlínarfílharmóníunnar, lýsti einmitt verkinu sem „stórkostlegu“.

Gagnrýnendur hafa vart haldið vatni yfir verkum eftir Veronique Vöku. Þannig hefur breska tónlistartímaritið Gramophone hlaðið hana lofi auk þess sem verk hennar hafa verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs og Íslensku tónlistarverðlaunanna. Á þessum tónleikum hljómar glænýtt verk, Gemæltan, en Vaka er þekkt fyrir að leita fanga í náttúrunni í verkum sínum.

Það er sellóleikarinn Sæunn Þorsteinsdóttir, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2022-23, sem pantaði verkið Bow to String hjá Daníel Bjarnasyni og frumflutti það en verkið hljóðritaði hún undir stjórn tónskáldsins á plötunni Processions. Sæunn er afar eftirsóttur einleikari um heim allan og stórblaðið The New York Times hefur kallað leik hennar „afar grípandi“.

Sækja tónleikaskrá