| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 26. nóv. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach Ricercar a 6 (úts. Anton Webern)
Johann Sebastian Bach Konsert fyrir blokkflautu, BWV 1053 (úts. Frans Brüggen)
Ígor Stravinskíj Dumbarton Oaks
Erkki-Sven Tüür Whistles and Whispers from Uluru
Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 1 „Klassíska sinfónían“
-
Hljómsveitarstjóri
Barbara Hannigan
-
Einleikari
Lucie Horsch blokkflauta
Blokkflautuleikarinn Lucie Horsch hefur skotist upp á stjörnuhimininn þrátt fyrir ungan aldur og er nú talin fremsti blokkflautuleikari sinnar kynslóðar. Hið virta tónlistartímarit breska ríkisútvarpsins, BBC sagði um leik Horsch að þar væri á ferðinni „Ógnvekjandi snilldargáfa og frábær tækni.“ Á þessum tónleikum kynnumst við möguleikum blokkflautunnar í tveimur mismunandi verkum; í umritun Frans Brüggen á fiðlukonsert Bachs fyrir blokkflautu og hljómsveit,
en einnig í ævintýralegu verki eftir eistneska tónskáldið Erkki-Sven Tüür, Whistles and Whispers from Uluru, þar sem fuglasöngur Eystrasaltsins blandast dulmagni hins rauðleita sandsteinsfjalls, Uluru, í Ástralíu. Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir einnig hljómsveitina í tveimur tónverkum nýklassíska tímans: Hinum glitrandi konsert, Dumbarton Oaks, eftir Ígor Stravinskíj og hinni bráðskemmtilegu klassísku sinfóníu eftir Sergej Prokofíev.
