| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 28. nóv. 2026 » 14:00 » Laugardagur | Norðurljós | Harpa | 6.400 kr. | ||
| Kaupa miða | ||||
-
Efnisskrá
Luciano Berio Þjóðlög
Georg Philip Telemann Tvíkonsert fyrir blokkflautu og þverflautu
Béla Bartók Rúmenskir þjóðdansar
Béla Bartók 3 ungversk þjóðlög
Þjóðlag frá Serbíu Pašona kolo
Piazzolla Libertango
Zequinha de Abreu Tico Tico
Íslenskt þjóðlag Móðir mín í kví kví (úts. Barbara Hannigan)
-
Flytjendur
Barbara Hannigan sópran
Lucie Horsch blokkflauta og mezzo-sópran
Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Barbara Hannigan, blokkflautusnillingurinn Lucie Horsch og hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands bjóða tónleikagestum í spennandi óvissuferð þar sem þjóð- og dægur- tónlist frá ólíkum heimshornum er borin fram. Hér heyrum við frábærar útsetningar Luciano Berio á þjóðlögum ýmissa landa í flutningi Barböru Hannigan,
kraftmikla austur-evrópska takta sem urðu Bartók að innblæstri og dillandi suðræna blokkflautu-slagara. Þegar við bætist þjóðlagaarfur Íslands verða þessir tónleikar að sannkallaðri veislu fyrir augu og eyru með listamönnum á heimsmælikvarða.


