Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
21. mar. 2025 » 18:00 » Föstudagur | Norðurljós | Harpa | 4.500 kr. |
-
Efnisskrá
Astor Piazzolla Sumar úr Árstíðunum
Brasilískt þjóðlag Casinha Pequenina
Þórður Magnússon Scherzo
Villa-Lobos Bachianas Brasileiras nr. 5
Astor Piazzolla Vor úr Árstíðunum
Magnús Blöndal Sveitin milli sanda
Astor Piazzolla Libertango
-
Flytjendur
Sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands – Bryndís Halla Gylfadóttir, Margrét Árnadóttir, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, Hrafnkell Orri Egilsson, Sigurður Bjarki Gunnarsson, Sigurgeir Agnarsson, Steiney Sigurðardóttir, Urh Mrak
-
Einsöngvari
Herdís Anna Jónasdóttir
Á þessum tónleikum í Föstudagsröðinni sameina sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir krafta sína í heillandi og litríkri efnisskrá þar sem íslensk og suður-amerísk tónlist mætast. Verkin sem hljóma eru eftir Villa-Lobos, Þórð Magnússon, Astor Piazzolla og Magnús Blöndal Jóhannsson.
Herdís Anna Jónasdóttir sópran hefur um langt árabil verið ein af fremstu söngvurum landsins og hefur hún hlotið fjölda verðlauna fyrir list sína — til að mynda Íslensku tónlistarverðlaunin 2022 og Grímuverðlaunin 2019. Það er sérstakt tilhlökkunarefni að heyra bjarta og tæra rödd hennar mæta mjúkum og seiðandi hljóm sellósins, sem annars er allsráðandi á þessum skemmtilegu og fjölbreyttu tónleikum.
*Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.