EN

Hjakk á Myrkum músíkdögum

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
30. jan. 2020 » 19:30 - 21:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 4.600 kr.

Árið 2020 verða 40 ár liðin frá því að tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar var haldin í fyrsta sinn. Þá lék Sinfóníuhljómsveit Íslands á upphafstónleikum hátíðarinnar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hafa tónleikar Sinfóníunnar verið meðal stórviðburða hátíðarinnar allar götur síðan.

Meðal forsprakka hátíðarinnar fyrstu árin var Atli Heimir Sveinsson. Hjakk var lykilverk á ferli hans, samið árið 1979 og vakti mikla athygli og umtal á sinni tíð. „Þar er hjakkað af bráðskemmtilegri hugkvæmni í ætt við sverðdansa og svoleiðis, eða verksmiðju- og virkjanamúsík frá dögum Leníns & co.“, ritaði Leifur Þórarinsson í blaðadómi. Ákafur og knýjandi taktur gengur gegnum verkið allt, og 40 árum síðar er verkið er enn hressandi, ferskt og ögrandi.

Á Myrkum músíkdögum 1980 var Snorri Sigfús Birgisson í hópi allra yngstu tónskáldanna og vakti tónlist hans mikla hrifningu. Á tónleikunum 2020 verður frumfluttur Konsert fyrir hljómsveit sem Snorri samdi á árunum 2013–15 og tileinkar minningu tveggja góðvina sinna, hjónanna Noru Kornblueh og Óskars Ingólfssonar.

Hugi Guðmundsson hefur vakið mikla athygli fyrir tónlist sína og nýjasta verk hans er konsert saminn fyrir danska harmóníkusnillinginn Andreas Borregaard. Hann varð fyrsti harmóníkuleikarinn til að nema við hinn fræga Guildhall-skóla í Lundúnum, og ferðast nú um heiminn til að leika á tónleikum auk þess sem hann kennir við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Nýverið kom út hljóðritun hans á Goldberg-tilbrigðum Bachs og hefur hún fengið glimrandi dóma í heimspressunni.

Bára Gísladóttir hlaut nýverið hin virtu Léonie Sonning-verðlaun í Danmörku. Hún samdi ÓS í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands og var það frumflutt í Eldborg 1. desember 2018. Einnig hljómar fjörugt verk frá árinu 2013 eftir bandaríska tónskáldið Missy Mazzoli, sem hún samdi fyrir Fílharmóníusveit Los Angeles og hefur hljómað víða um heim við frábærar undirtektir. Hún gegnir nú stöðu staðartónskálds hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago og New York Times hafði um hana þau orð að hún væri „eitt hugmyndaríkasta tónskáld New York-borgar“ um þessar mundir. 

Daníel Bjarnason er hljómsveitarstjóri á tónleikunum en hann hefur hlotið mikla athygli undanfarin ár bæði fyrir tónlist sína og hljómsveitarstjórn. Daníel var á árunum 2015–2018 staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegnir nú stöðu aðalgestastjórnanda.

Sækja tónleikaskrá