EN

Jólatónleikar Sinfóníunnar

Litli tónsprotinn

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
14. des. 2024 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 3.900 - 4.700 kr.
14. des. 2024 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 3.900 - 4.700 kr.
15. des. 2024 » 14:00 » Sunnudagur Eldborg | Harpa 3.900 - 4.700 kr.
15. des. 2024 » 16:00 » Sunnudagur Eldborg | Harpa 3.900 - 4.700 kr.
Kaupa miða
  • Hljómsveitarstjóri

    Hjörtur Páll Eggertsson

  • Einsöngvarar

    Ragnheiður Gröndal
    Benedikt Kristjánsson
    Kolbrún Völkudóttir einsöngur á táknmáli

  • Kynnir

    Trúðurinn Barbara

  • Kórar

    Stúlknakór Reykjavíkur
    Kammerkórinn Aurora

  • Aðrir flytjendur

    Dansarar úr Listdansskóla Íslands
    Langspilssveit Flóaskóla

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru tilvaldir fyrir jólabörn á öllum aldri. Tónleikarnir eru hátíðlegir að vanda og með dálítið þjóðlegu ívafi að þessu sinni þar sem íslenskar þjóðvísur mæta sígildum jólalögum og töfrandi tónlistarævintýrum, uppfullum af jólaanda.

Nýr jólaforleikur prýddur íslenskum og erlendum þjóðlögum opnar dagskrá tónleikanna og söngvararnir Ragnheiður Gröndal, Benedikt Kristjánsson og Kolbrún Völkudóttir flytja fallegar jólaperlur. Kórarnir, ásamt dönsurum, flytja valda þætti úr Snjókarlinum, töfrandi jólaævintýri um vináttuna, eftir Howard Blake. Bjöllukórarnir sameina krafta sína í laginu Hátíð fer að höndum ein og Langspilssveitin strammar sjálft þjóðarhljóðfærið af miklum þrótti. Kynnir á tónleikunum er trúðurinn Barbara, besta vinkona Halldóru Geirharðsdóttur leikkonu, sem kemur öllum í sannkallað hátíðarskap. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.

Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés.