Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
16. des. 2023 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.500 - 4.200 kr. | ||
16. des. 2023 » 16:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.500 - 4.200 kr. | ||
17. des. 2023 » 14:00 » Sunnudagur | Eldborg | Harpa | 3.500 - 4.200 kr. | ||
17. des. 2023 » 16:00 » Sunnudagur | Eldborg | Harpa | 3.500 - 4.200 kr. | ||
Kaupa miða |
-
Hljómsveitarstjóri
Ross Jamie Collins
-
Einsöngvarar
Páll Óskar Hjálmtýsson
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Kolbrún Völkudóttir
-
Kynnir
Trúðurinn Barbara
-
Gestir
Stúlknakór Reykjavíkur
Kammerkórinn Aurora
Dansarar úr Listdansskóla Íslands
Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Ungir tónlistarnemendur
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa um árabil notið gífurlegra vinsælda meðal gesta á öllum aldri. Á þessum hátíðlegu fjölskyldutónleikum hljóma sígildar jólaperlur í bland við klassísk jólaævintýri og grípandi hljómsveitartónlist sem kemur öllum í jólaskap. Ungir hljóðfæraleikarar, ballettdansarar og einleikarar ásamt stúlknakór Reykjavíkur, Páli Óskari, Jóhönnu Guðrúnu og Kolbrúnu Völkudóttur færa hlustendum jólalögin í sannkölluðum hátíðarbúningi.
Þá kíkir Maximús Músíkús í heimsókn, biður hljómsveitina um að leika uppáhalds jólalagið sitt og fær gesti í sal til að taka lagið. Barbara trúður hjálpar tónleikagestum að finna jólaandann með óviðjafnanlegum kynningum sem túlkaðar eru á táknmáli. Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flytur jólalög á undan og eftir tónleikum í Hörpuhorni.
Þetta eru tónleikar fyrir jólabörn á öllum aldri.