EN

Jólatónleikar Sinfóníunnar á aðfangadag á RÚV

Dagsetning Staðsetning Verð
24. des. 2020 » 13:25 - 14:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa Í beinni á RÚV

Jólatónleikum Sinfóníunnar verður sjónvarpað á RÚV á aðfangadag 24. desember kl. 13:25 svo krakkarnir geta horft meðan foreldrarnir stússast, og svo aftur á jóladag kl. 13:15 svo allir geti horft saman í rólegheitunum.

Jólatónleikar hljómsveitarinnar eru árlegt tilhlökkunarefni hjá ótal fjölskyldum enda kemur fram fjöldi listamannam fram með sveitinni, bæði listamenn sem allri þekkja og yngri tónlistarnemar og dansarar sem eru að stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Þar hljómar falleg jólatónlist frá ýmsum tímum, meðal annars hátíðlegur jólaforleikur og dans úr Svanavatninu eftir Tsjajkovskíj.

Einsöngvarar eru þau Páll Óskar Hjálmtýsson, Valgerður Guðnadóttir og táknmálssöngkonan Kolbrún Völkudóttir. Már Gunnarsson flytur eigið jólalag sem er sérstaklega útsett fyrir tónleikana en hann hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi að undanförnu þrátt fyrir ungan aldur. Hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason og kynnir er trúðurinn Barbara en tónleikarnir eru einnig túlkaðir á táknmáli.

Í ljósi núgildandi samkomutakmarkana verður ekki hægt að bjóða gestum í sal en tónleikunum verður sjónvarpað á RÚV og útvarpað á Rás 1. Tónleikarnir verða endursýndir á RÚV á jóladag kl. 13:15.