EN

Kozhukhin leikur Brahms

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
14. mar. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Franz Schubert Sinfónía nr. 3
    Hafliði Hallgrímsson Fjórar hljómsveitarmyndi
    Johannes Brahms Píanókonsert nr. 1

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Einleikari

    Denis Kozhukhin

Tónleikakynning » 14. mar. kl. 18:00

Rússneski píanóleikarinn Denis Kozhukhin er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur en flutningur hans á öðrum píanókonserti Prokofíev með sveitinni í febrúar 2019 var að mati gagnrýnanda Fréttablaðsins „einhver mesta flugeldasýning sem maður hefur upplifað í Eldborginni í Hörpu“. Kozhukhin þurfti að hverfa frá fyrirhuguðum tónleikum sínum á meðan á heimsfaraldrinum stóð og er því sérlega ánægjulegt að bjóða hann velkominn á svið Eldborgar á ný, nú til þess að leika hinn stórbrotna fyrri píanókonsert Johannesar Brahms. Konsertinn er geysistór í sniðum og innblásinn af sterkum tilfinningum hins unga Brahms í garð hjónanna Clöru og Roberts Schumann, en Robert lést á meðan verkið var í smíðum.

 Hafliði Hallgrímsson hefur verið í fremstu röð íslenskra tónskálda um áratugabil og á að baki fjölbreyttan og glæsilegan feril, bæði sem tónskáld og sem sellóleikari. Hann hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir tónlist sína, til að mynda Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1986 fyrir fiðlukonsertinn Poemi. Það er sérstakt gleðiefni að geta frumflutt nýtt hljómsveitarverk eftir Hafliða, sem fagnaði áttræðisafmæli haustið 2021. Tónleikarnir hefjast á hinni fjörmiklu þriðju sinfóníu Schuberts, verki sem tónskáldið samdi átján ára gamall á tímabili ótrúlegrar sköpunargleði.