Carolin Widmann
Fiðla
Carolin Widmann er heimskunn fyrir persónulegan stíl sinn og einstaka tónlistargáfu. Hún hlaut Ríkisverðlaun Bæjaralands fyrir tónlist árið 2017 og Alþjóðlegu klassísku tónlistarverðlaunin fyrir rómaða hljóðritun sína á fiðlukonsertum Mendelssohns og Schumanns með Kammerhljómsveit Evrópu, sem hún stjórnaði sjálf frá fiðlunni. Árið 2013 var hún útnefnd tónlistarmaður ársins á Alþjóðlegu klassísku tónlistarverðlaununum.
Widmann hefur komið fram með fremstu hljómsveitum heims, þar á meðal Berlínar-fílharmóníunni, Sinfóníuhljómsveit Parísar, Frönsku þjóðarhljómsveitinni, Tékknesku fílharmóníunni, Fílharmóníusveit Lundúna, Sinfóníuhljómsveit breska ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveit Bæverska útvarpsins. Hún hefur unnið með stjórnendum á borð við Sir Simon Rattle, Esa-Pekka Salonen, Riccardo Chailly og Vladimir Jurowski. Hún er einnig reglulegur gestur á helstu alþjóðlegu tónlistarhátíðum.
Carolin Widmann hefur einu sinni áður komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Það var árið 2007 er hún lék einleik í fiðlukonsert eftir Thomas Adés undir stjórn tónskáldsins. Á þessu starfsári leikur hún nýjan fiðlukonsert eftir ítalska tónskáldið Clöru Iannotta á Myrkum músíkdögum.
