| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 28. jan. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 6.100 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Þuríður Jónsdóttir Miss Reykjavik Rita
Clara Iannotta sand like gold-leaf in smithereens - frumfl. á Íslandi
Kjartan Sveinsson Nýtt verk – frumflutningur
Haukur Tómasson Sixty Silver Domes – frumflutningur
Bára Gísladóttir sea sons seasons – frumfl. á Íslandi
-
Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason
-
Einleikari
Carolin Widmann fiðla
Á tónlistarhátíðinni Myrkum Músíkdögum er ný tónlist í brennidepli. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur tvö tónverk eftir þá Kjartan Sveinsson og Hauk Tómasson. Þá eiga Bára Gísladóttir, Þuríður Jónsdóttir og Clara Iannotta einnig verk á efnisskránni. Kjartan er ótrúlega fjölhæfur tónlistarmaður og tónskáld. Þekktur sem einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Sigur Rósar en einnig fyrir tónsmíðar sem fluttar hafa verið víða um heim. Haukur Tómasson er á meðal okkar fremstu tónskálda og hefur hljómsveitin flutt og hljóðritað fjölda verka hans.
Ferill Báru Gísladóttur er á hraðri uppleið og á þessum tónleikum verður verk hennar, sea sons seasons, flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Þar veltir tónskáldið fyrir sér hafinu og þeim fjölbreyttu verum sem þar búa, raunverulegum sem óraunverulegum. Á tónleikunum leikur hin heimsþekkta Carolin Widmann nýjan fiðlukonsert eftir Clöru Iannotta. Þessi konsert komst nýlega í menningarpressuna þegar hljómsveitin sem pantaði verkið í upphafi neitaði að flytja það. Konsertinn er skrifaður fyrir Widmann og kannar litamöguleika fiðlunnar og hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Á tónleikunum hljómar einnig verk Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2014, Miss Reykjavík Rita.
