EN

Christoph Koncz

Hljómsveitarstjóri

Christoph Koncz var leiðari 2. fiðlu í Vínarfílharmóníunni í yfir fimmtán ára skeið áður en hann snéri sér að hljómsveitarstjórn. Hann er tónlistarstjóri Orchestre National de Mulhouse, aðalhljómsveitarstjóri Deutsche Kammerakademie Neuss am Rhein og hefur verið skipaður aðalhljómsveitarstjóri Bruckner Orchester Linz frá árinu 2027. Hann stjórnar reglulega Sinfóníuhljómsveitinni í Lundúnum, Parísar-sinfóníunni, Staatskapelle Dresden og Sinfóníuhljómsveitinni í Cleveland. Christoph hlaut heimsfrægð einungis níu ára gamall þegar hann lék ungan fiðlusnilling í kvikmyndinni The Red Violin.