EN

Vínartónleikar

Nýárstónleikar 2027

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
7. jan. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 4.100 - 12.700 kr.
8. jan. 2027 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa 4.100 - 12.700 kr.
9. jan. 2027 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 4.100 - 12.700 kr.
9. jan. 2027 » 19:30 » Laugardagur Eldborg | Harpa 4.100 - 12.700 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Óperettutónlist, valsar og polkar

  • Hljómsveitarstjóri

    Christoph Koncz

  • Einsöngvarar

    Harpa Ósk Björnsdóttir sópran
    Eggert Reginn Kjartansson tenór

Tónleikakynning » 7. jan. kl. 18:00 — Norðurljósasalur

Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar. Þeir eru sannkölluð nýársveisla og sú létta og skemmtilega tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt ár. Á efnisskránni er að vanda sígild Vínartónlist sem kemur öllum í gott skap; valsar, polkar, og fjörug galopp. Þá hljóma aríur og dúettar úr vinsælum óperettum í flutningi tveggja framúrskarandi einsöngvara. 

Sópransöngkonan Harpa Ósk Björnsdóttir er Íslendingum að góðu kunn, en hún er nú fastráðin við óperuna í Basel í Sviss. Eggert Reginn Kjartansson, tenórsöngvari hefur að undanförnu vakið athygli í uppfærslum Kammeróperunnar, nú síðast sem Don Jose í Carmen. Auk þeirra koma fram samkvæmisdansarar sem stíga létt og glæsileg spor í Eldborg við dynjandi Vínartónlistina. Vínartónleikarnir eru ævinlega fullkominn upptaktur að nýju ári og færa áheyrendum birtu og yl í svartasta skammdeginu.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klukkustundir með hléi.