EN

Nicholas Swensen

Conductor

Nicholas Swensen er danskur víóluleikari og hljómsveitarstjóri, sigurvegari Juilliard–víólukeppninnar 2021, handhafi Léonie Sonning-hæfileikaverðlaunanna og hæfileikaverðlauna danska ríkisútvarpsins. Hann hefur hlotið verðlaun í víólukeppnum í Los Angeles, Prag og Berlín, og komið fram sem einleikari með Juilliard-hljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveitinni í Odense, auk þess sem hann hefur leikið kammertónlist með Sir András Schiff, Gidon Kremer og Christian Tetzlaff. Hann útskrifaðist frá Juilliard og stundar nú nám í Kronberg Academy undir handleiðslu Tabeu Zimmermann. Sem hljómsveitarstjóri hefur hann lært hjá Jorma Panula og Fabio Luisi og var valinn í norrænu hljómsveitarstjóraakademíuna, Dirigentløftet, árið 2024.

Nicholas Swensen stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn sem hluti af Dirigentløftet-verkefninu og kemur aftur til að stjórna hinum sívinsælu jólutónleikum hljómsveitarinnar í desember 2025.