| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 12. des. 2026 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 4.100 - 5.100 kr. | ||
| 12. des. 2026 » 16:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 4.100 - 5.100 kr. | ||
| 13. des. 2026 » 14:00 » Sunnudagur | Eldborg | Harpa | 4.100 - 5.100 kr. | ||
| 13. des. 2026 » 16:00 » Sunnudagur | Eldborg | Harpa | 4.100 - 5.100 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Jólatónlist sem kemur öllum í sannkallað hátíðarskap
-
Hljómsveitarstjóri
Nicholas Swensen
-
Einleikarar
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Jóhann Kristinsson
-
Einsöngur á táknmáli
Kolbrún Völkudóttir
-
Kynnir
Halldóra Geirharðsdóttir / Trúðurinn Barbara
-
Aðrir gestir
Dansarar úr Listdansskóla Íslands
Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Bjöllukór Tónstofu Valgerðar
Skólahljómsveit Kópavogs
Hörpuhópur
-
Kórar
Stúlknakór Reykjavíkur
Kammerkórinn Aurora
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sannkölluð hátíðarstund fyrir jólabörn á öllum aldri. Að vanda ríkir hátíðlegur blær í Eldborg þar sem ungir hljóðfæraleikarar og ballettdansarar ásamt einsöngvurum og kórum færa gestum glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Sígildar jólaperlur fléttast saman við klassísk ævintýri sem koma öllum í hátíðarskap.
Maxímús Músíkús setur upp rauðu húfuna og trúðurinn Barbara flytur sína alkunnu og hlýju jólahugleiðingu sem snertir streng í hverju hjarta. Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.
