Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
Hljómsveitarstjóri
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir útskrifaðist frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi með meistaragráðu í söng árið 2023 og úr Malko-hljómsveitarstjóraakademíunni í Kaupmannahöfn árið 2024 þar sem hún stjórnaði Dönsku þjóðarhljómsveitinni. Hún lauk svo hljómsveitarstjóranámi við Tónlistarháskólann í Osló vorið 2026. Hún er þekkt fyrir að syngja og stjórna samtímis og vakti mikla athygli þegar hún flutti Pierrot lunaire eftir Schönberg á Óperudögum 2024 og var í kjölfarið tilnefnd sem „Söngvari ársins“ og „Flytjandi ársins“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2025. Árið 2023 var hún valin „Bjartasta vonin“ á tónlistarverðlaununum.
Ragnheiður Ingunn leikur reglulega á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún söng einsöng og stjórnaði hljómsveitinni á Ungum einleikurum 2023 og hefur stjórnað hljómsveitinni í upptökum, á hádegistónleikum og Barnastundum, auk þess sem hún hefur tekið þátt í hljómsveitarstjóraakademíu hljómsveitarinnar undir handleiðslu Evu Ollikainen.
Hún er stjórnandi Nordic Opera Choir sem heldur tónleika víðs vegar á Norðurlöndum, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Árósa.
