Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 20. feb. 2027 » 14:00 » Laugardagur | Flói | Harpa | 0 kr. | ||
| 20. feb. 2027 » 15:00 » Laugardagur | Flói | Harpa | 0 kr. | ||
| Aðgangur ókeypis | ||||
-
Efnisskrá
Létt og skemmtileg tónlist fyrir yngstu tónleikagestina
-
Hljómsveitarstjóri
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
-
Kynnir
Níels Thibaud Girerd, Bolli Könnuson Le Stell
Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn.
Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á.
Aðgangur er ókeypis, hægt verður að bóka miða þegar nær dregur tónleikum.

