Tabita Berglund
Hljómsveitarstjóri
Tabita Berglund hefur skipað sér í fremstu röð hljómsveitarstjóra sinnar kynslóðar og er rómuð fyrir heillandi stjórnunarstíl sem sameinar glæsileika, kraft og nákvæmni. Hún tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Bergen í ágúst 2027, eftir að hafa gegnt stöðu verðandi aðalhljómsveitarstjóra frá ágúst 2026. Hún er einnig aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Detroit og Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Dresden, en þær stöður komu í kjölfar frumraunar hennar með hvorri hljómsveit.
Á starfsárinu 2025–26 opnaði Berglund starfsár Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Dresden og snéri aftur til að opna tónlistarhátíðina í Dresden. Á starfsárinu þreytir hún einnig frumraun sína með hljómsveitum í Berlín, Cincinnati, St. Louis, Frankfurt, Hamborg, Sydney og Melbourne, auk þess sem hún snýr aftur til Dallas, Gautaborgar, Bergen, Lahti og Düsseldorf.
Tabita Berglund stjórnaði eftirminnilegum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í maí 2025 og var í kjölfarið boðið að nýju til samstarfs með hljómsveitinni.
