| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 11. mar. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Carl Nielsen Helíos forleikur
Edvard Grieg Píanókonsert í a-moll
Anna Þorvaldsdóttir Shadows of Solace – frumfl. á Íslandi
-
Hljómsveitarstjóri
Tabita Berglund
-
Einleikari
Ásta Dóra Finnsdóttir píanó
Ásta Dóra Finnsdóttir er ein af okkar efnilegustu píanóleikurum og stundar nú framhaldsnám við einn virtasta tónlistarskóla heims, Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum. Hún leikur hér hinn síunga píanókonsert Griegs sem geislar af lífi og krafti. Konsertinn sló í gegn strax við frumflutning og hefur síðan verið eitt vinsælasta tónverk Griegs.
Á síðari hluta tónleikanna verður Íslandsfrumflutningur á nýju stórvirki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en jafnan er beðið eftir nýjum verkum frá Önnu með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki. Hin norska Tabita Berglund, stjórnandi tónleikanna, er á hraðri uppleið í heimi hljómsveitarstjóra og tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bergen haustið 2026.
