EN

Maxímús heimsækir hljómsveitina

Dagsetning Staðsetning Verð
13. feb. 2021 » 14:00 - 15:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.000 kr. UPPSELT
13. feb. 2021 » 16:00 - 17:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.000 kr.
  • Efnisskrá

    Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Sögumaður

    Valur Freyr Einarsson

Sagan um Maxímús Músíkús er eitt ástsælasta tónlistarævintýri þjóðarinnar og hefur raunar farið um allan heim við mikla hrifningu. Músin ástsæla villist inn á æfingu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem hún kynnist tónlistinni af eigin raun og leiðir hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verið þýtt á fjölda tungumála.

Höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús er Hallfríður Ólafsdóttir en hún var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúma tvo áratugi og eru tónleikarnir tileinkaðir minningu hennar. Þórarinn Már Baldursson víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands myndskreytir sögurnar. Ævintýrið um Maxa og hljómsveitina er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Athugið: Miðasölu á tónleikana lýkur kl. 13 á tónleikadegi svo að hægt sé að úthluta tónleikagestum sæti. Tryggðu þér miða í tíma.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað. Vegna fjarlægðartakmarkana er gestum raðað í sæti af starfsfólki miðasölu til þess að tryggja að bil milli gesta sé í samræmi við sóttvarnarreglur. Úthlutun sæta fer fram 24 tímum áður en tónleikar hefjast og fá miðahafar sendan tölvupóst með sætanúmerum daginn fyrir tónleika, föstudaginn 12. febrúar. Tónleikagestum 15 ára og eldri ber skylda að vera með grímur á viðburðinum. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.