Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
8. feb. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.000 - 9.200 kr. | ||
Kaupa miða |
-
Efnisskrá
Charles Ives Sinfónía nr. 3
Felix Mendelssohn Fiðlukonsert í e-moll
Caroline Shaw Entr'acte
Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 8
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
Ísraelski fiðluleikarinn Vadim Gluzman er meðal fremstu fiðluleikara samtímans og þekktur fyrir að blása nýjum lífsanda í verk frá gullöld fiðlubókmenntanna á 19. og 20. öld. Á þessum tónleikum leikur hann hinn sívinsæla fiðlukonsert Mendelssohns í e-moll, þann síðasta sem Mendelssohn lauk við á sinni skömmu ævi. Sinfónía Beethovens nr. 8 er ein af hans fjörmestu tónsmíðum, full af gleði og gáska, og taldi Beethoven sjálfur hana meðal sinna bestu verka.
Til viðbótar við þessi þýsku öndvegisverk frá 19. öld hljóma á tónleikunum tvö bandarísk verk af nýstárlegri toga. Sinfónía nr. 3 eftir Charles Ives var samin 1904 en lá í skúffu tónskáldsins, sem starfaði sem virðulegur tryggingasölumaður í dagvinnu, í ríflega 40 ár áður en hún var frumflutt.
Þannig var það reyndar með mörg af framsæknustu verkum hans, enda voru þau á margan hátt á undan sinni samtíð. Í Sinfóníu nr. 3 enduróma minningar Ives um guðsþjónustur sem hann sótti í æsku og fléttast þar saman gömul sálmalög svo úr verður heillandi óreiða. Caroline Shaw hlaut Pulitzer-verðlaunin í tónlist 2013, aðeins þrítug að aldri, yngst í 70 ára sögu verðlaunanna. Verkið sem hér hljómar er millispil fyrir strengjasveit, innblásið af menúetti eftir Haydn og kallast skemmtilega á við hefð Vínarklassíkurinnar.