Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
30. okt. 2025 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.990 - 10.100 kr. | ||
Kaupa miða |
-
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Fiðlukonsert nr. 5
Anton Bruckner Sinfónía nr. 7
-
Hljómsveitarstjóri
Eva Ollikainen
-
Einleikari
Noah Bendix-Balgley
Fimmti og síðasti fiðlukonsert W. A. Mozarts var frumfluttur á tónleikum í Salzburg í desember fyrir 250 árum og þar var 19 ára tónskáldið sjálft í hlutverki einleikarans. Konsertinn er viðamestur allra fiðlukonserta Mozarts, leiftrar af hugmyndaauðgi og leikgleði og óvæntar hraða- og taktbreytingar teygja konsertformið inn á nýjar brautir. Hinn bandaríski Noah Bendix-Balgley er 1. konsertmeistari Fílharmóníusveitarinnar í Berlín, en kemur einnig reglulega fram sem einleikari með mörgum af fremstu hljómsveitum heims.
Sjöunda sinfónía Antons Bruckner er ein þekktasta sinfónía tónskáldsins og er talin meðal hornsteina síðrómantískrar sinfóníugerðar. Viðtökurnar á sinfóníunni mörkuðu þáttaskil á ferli Bruckners og skipuðu honum í fremstu röð sinfónískra tónskálda á 19. öld. Richard Wagner, sem var mikil fyrirmynd Bruckners, lést skömmu áður en smíði sinfóníunnar lauk og telja margir að virðing Bruckners fyrir óperutónskáldinu birtist með ýmsum hætti í sinfóníunni.