Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
3. okt. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa |
-
Efnisskrá
Carl Maria von Weber Oberon, forleikur
Anna Þorvaldsdóttir METACOSMOS
Jean Sibelius Sinfónía nr. 5
-
Leiðbeinandi
-
Þátttakendur
Nicholas Swensen
Hjörtur Páll Eggertsson
Mikael Loponen
Anna Hartmann
Tobias Furholt
Nordisk Dirigentforum er metnaðarfullt samstarfsverkefni sinfóníuhljómsveita á Norðurlöndunum þar sem efnilegustu hljómsveitarstjórum þjóðanna gefst færi á að vinna náið með tveimur sinfóníuhljómsveitum yfir heilt starfsár. Markmið námskeiðsins er að skapa faglegan æfingavettvang þar sem ungir og upprennandi norrænir hljómsveitarstjórar öðlast reynslu af því að stjórna sinfóníuhljómsveit. Nú tekur Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn þátt í þessu spennandi verkefni og býður til sín fimm hljómsveitarstjórum sem stjórna hljómsveitinni undir leiðsögn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra. Nemendurnir endurtaka svo leikinn með Sinfóníuhljómsveitinni í Árósum í Danmörku næsta vor.
Á þessum opnu tónleikum hljómar afrakstur námskeiðsins þar sem ungir, framúrskarandi hljómsveitarstjóranemar stjórna forleiknum að Oberon eftir Carl Maria von Weber, METACOSMOS eftir Önnu Þorvaldsdóttur og fimmtu sinfóníu Sibeliusar.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Gengið er inn í Eldborg um inngang 2A á annarri hæð Hörpu.
Tónleikarnir eru u.þ.b. 80 mínúta langir með hléi.