EN

NýKlassík og Sinfó

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
19. ágú. 2021 » 20:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 4.900 – 9.900 kr.
20. ágú. 2021 » 20:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 4.900 – 9.900 kr.
21. ágú. 2021 » 17:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 4.900 – 9.900 kr.
  • Fram koma ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands

    Bríet, Cell7, Flóni, GDRN, Joey Christ, JóiPé og Króli, Logi Pedro, Reykjavíkurdætur og Unnsteinn.

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

Sinfóníuhljómsveit Íslands á stefnumót við marga af vinsælustu tónlistarmönnum landsins á þrennum stórtónleikum í Eldborg. Þau sem koma fram og flytja lög sín í nýjum órafmögnuðum útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit eru: GDRN, Flóni, Bríet, Joey Christ, Logi Pedro, Unnsteinn, JóiPé og Króli, Cell7 og Reykjavíkurdætur.

Hjómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og útsetningar eru í höndum Viktors Orra Árnasonar. Tónleikagestir geta átt von á því að heyra lög eins og Án þín, Ógeðsleg, Geimvera og Rólegur kúreki ásamt fleiri þekktum lögum. Enginn má missa af þessum einstöku tónleikum þar sem um hundrað tónlistamenn taka höndum saman og skapa nýja klassík.

Athugið að í samræmi við gildandi reglur almannavarna er Eldborgarsal Hörpu skipt upp í fimm sóttvarnahólf. Ávallt er eitt autt sæti milli pantana til að gæta að fjarlægðarmörkum. Þar að auki er grímuskylda á tónleikunum og vel gætt að öllum sóttvörnum í Hörpu.

Sækja tónleikaskrá