EN

Nýtt og norrænt

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
13. okt. 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 4.900 kr.

Á þessum tónleikum hljómar það ferskasta í norrænni tónlist enda um að ræða glæsilega fulltrúa ungra norrænna tónskálda sem valdir hafa verið inn í hátíðardagskrá Norrænna músíkdaga.

Finnska tónskáldið Outi Tarkiainen hefur getið sér gott orð fyrir verkið The Ring of Fire and Love sem var frumflutt í Stokkhólmi í fyrra. Þar birtast ljóslifandi jarðhræringar Kyrrahafsins en heiti verksins getur jafnframt vísað til fæðingarreynslu kvenna.

Verk Idins Samimi Mofakham þykja minna rækilega á tónheim heimalands hans, Írans, en hann hefur þróað afar frumlegt tónmál sem birtist í ólíkum verkum, þar á meðal í hinu risavaxna Zurvān. Mofakham býr og starfar í Noregi.

Hin sænska Lisa Streich hefur lýst verkinu Segel sem mjög mikilvægu á sínum ferli. Með því vann hún í fyrsta skipti með litrófshljóma en verkið er einnig afar kóreógrafískt. Það var frumflutt á Lucerne-hátíðinni í Sviss árið 2017.

Gunnar Karel Másson hefur einkum fengist við kammertónlist á ferli sínum sem tónskáld en nú hljómar hér nýtt verk eftir hann fyrir sinfóníuhljómsveit. Gunnar hefur einnig haslað sér völl sem tónleikahaldari og komið á laggirnar tónlistarhátíðum á borð við Sonic í Kaupmannahöfn.

Jesper Nordin er í hópi leiðandi tónskálda sinnar kynslóðar í Svíþjóð. Verk hans eru flutt víða um heim, þar á meðal Ärr sem var frumflutt i Stokkhólmi árið 2014. Þar sækir hann innblástur í lag sænsku þungarokksveitarinnar Meshuggah, einkum hvað ryþma varðar.

Sækja tónleikaskrá